Kæru félagsmenn
SfK undirritaði nýjan kjarasamning í mars 2020. Samið var um nýjan sjóð sem nefnist Félagsmannasjóður. Sjóðurinn fékk nafnið Katla og á að koma til greiðslu 1. febrúar ár hvert.
Stjórn Kötlu félagsmannasjóðs hefur unnið að því hörðum höndum að búa svo um að hægt sé að sækja um í sjóðinn. Vinnsla á rafrænni umsóknarsíðu, eins og við þekkjum gjarnan sem “mínar síður” er á lokametrunum.
Vegna þess hve sjóðurinn er nýr getur umsóknarferlið ásamt öðrum þáttum tafist um einn mánuð. Við munum upplýsa félagsmenn um leið og umsóknarferlið fer af stað.