Úthlutun frá Kötlu vegna ársins 2022

Katla merki

Aðild að Kötlu félagsmannasjóði eiga eingöngu starfsmenn sveitarfélaga, einnig eiga aðild að sjóðnum starfsmenn hjá Hjallastefnunni og sjálfseignarstofnunum sem eru með ákvæði um Félagsmannasjóð í kjarasamningi. Réttur sjóðfélaga er bundinn við aðild að sjóðnum líkt og reglur sjóðsins kveða á um.

Vegna fjölda afgreiðsla verður greitt út í áföngum frá 3. febrúar nk. Hámarksupphæð verður kr. 94.000 fyrir 100% starf allt árið 2022. Hægt er að sækja um hér

Þeir sem hafa fengið greitt úr sjóðnum árið 2022 vegna starfa sinna árið 2021 þurfa ekki að sækja um þar sem viðeigandi gögn og bankaupplýsingar liggja fyrir.

Hlutverk sjóðsins er að auka tækifæri sjóðfélaga til starfsþróunar, m.a. með því að sækja sér fræðslu og endurmenntun og með því að sækja ráðstefnur, þing og námskeið til þess að þróa sína starfshæfni.

Ekki er skilyrði að hafa lagt út fyrir námi/námskeiði til að hljóta styrk úr sjóðnum

Styrkur úr Kötlu félagsmannasjóði skerðir ekki möguleika á styrkjum frá öðrum sjóðum stéttarfélaganna

Ef spurningar vakna um rétt til greiðslu úr sjóðnum hafðu þá samband við okkur í gegnum netfangið sfk@stkop.is  eða í síma 554-5124

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email
Print