Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir á orlofskostum fyrir sumarið 2023. Hér fyrir neðan er að finna allar upplýsingar um úthlutun og mikilvægar dagsetningar.
UMSÓKNARKOSTIR, TÍMABIL OG ÚTHLUTUN ÁRIÐ 2023
Umsóknarfrestur hefst: 6. mars 2023
Umsóknartímabili lýkur: 26. mars 2023
Úthlutun fer fram: 27. mars 2023
Greiðslufrestur orlofshúsa innanlands er til og með: 3. apríl 2023
Greiðslufrestur orlofshúsa á Spáni er til og með: 1. apríl 2023
Opnað fyrir bókanir virkra félaga: 5. apríl 2023
Vikuverð má sjá með því að setja bendilinn yfir það tímabil sem er í skoðun undir laus tímabil.
Úthlutun fer fram 27. mars 2023 og eru niðurstöður sendar í tölvupósti á skráð netfang á orlofsvef. Umsækjendur þurfa að gæta að því að rétt netfang sé skráð inni á „mínar síður“. Greiðslufrestur til að staðfesta fengna úthlutun er til og með 3. apríl fyrir orlofshús innanlands en 1. apríl fyrir orlofshús á Spáni. Dagsetningar umsóknartímabila koma fram í töflunni hér fyrir ofan. |
SÆKJA ÞARF UM Í SÍÐASTA LAGI 26. MARS 2023 Á ORLOFSVEFNUM
Félagsfólk SfK sækir um orlofshús og orlof að eigin vali rafrænt á orlofsvef félagsins. Athugið að ekki er tekið á móti umsóknum í tölvupósti.
Hvernig á að sækja um orlofshús?
- Fyrst þarf að skrá sig inn á orlofsvefinn efst hægra megin í horninu „innskráning“. Sækja skal um með því að fara í „Laus tímabil“ eða „Umsókn um úthlutun“. Gæta skal að því að velja réttan mánuð (heiti mánaðar verður appelsínugult) og velja þann orlofskost og tímabil sem sótt er um. Klára þarf allt umsóknarferlið og senda umsóknina inn. Staðfesting á innsendri umsókn berst í tölvupósti til þess netfangs sem skráð er á orlofsvefnum. Hægt er að skoða skráningu undir „síðan mín“ „mínar upplýsingar“.
- Ekki skiptir máli hvenær á skráðu umsóknartímabili sótt er um. Hægt er að sækja um fyrsta og annan valkost. Að úthlutun lokinni fær félagsfólk niðurstöður sendar í tölvupósti á skráð netfang á orlofsvef.
- Greiðsla fer fram rafrænt í gegnum orlofsvefinn með öruggu greiðslukerfi Saltpay/Borgunar.
- Að greiðslufresti loknum eru orlofskostir sem ekki leigðust út boðnir virku félagsfólki undir reglunni „fyrstur kemur fyrstur fær“. Á orlofsvefnum getur félagsfólk bókað lausa orlofskosti beint án úthlutunarferlis. Gilda þar sömu reglur um punkta og verð.
- Ekki er tekið á móti umsóknum í tölvupósti.
- Reglur og skilmála félagsins er hægt að kynna sér á orlofsvefnum og áður en greiðsla fer fram.
Ef félagsfólk þarf aðstoð við bókunarkerfið er hægt að hafa samband við skrifstofu félagsins í síma 554 5124.